Már segist hafa verið sérstaklega slæmur í hálsliðum. „Ég er lærður húsasmiður en er eiginlega alt muligt maður,“ segir hann. „Get eiginlega aldrei verið aðgerðalaus og er alltaf að dunda mér við eitthvað, hvort sem það eru endurbætur hér heima, að hjálpa vinum og vandamönnum eða vinna í garðinum“ segir Már, sem býr í Fljótshlíðinni ásamt konu sinni, Önnu Óskarsdóttur. „Við búum á þessum fagra stað,“ segir hann.
„Ég var alltaf í átaksvinnu, aðallega í virkjunum. Það hefur komið niður á líkamanum en ég hef verið sérstaklega slæmur í hálsinum. Ég vann lengi í járnabindingum og oft með mikil þyngsli í höndunum. Það reynir á skrokkinn og kemur fram þegar maður eldist,“ segir hann. „Ég var með mikla verki í hálsinum og átti erfitt með svefn. Ég hafði leitað til heimilislækna
í einhver ár, en það eina sem ég fékk út úr því var að taka verkjalyf. Ég fór í nudd með litlum árangri, verkirnir versnuðu bara ef eitthvað var. Ég var síðan sendur í mynda- töku og þá kom fram mikið slit
í hálsliðum en því miður á svo vondum stað að ekkert er hægt
að gera. Eina ráðið voru verkja- og gigtartöflur það sem eftir er, sem mér hugnaðist ekkert sérstaklega vel,“ útskýrir Már.
Get loksins sofið
„Ég sá auglýsingu frá Eylíf um Active JOINTS og hugsaði með mér að það væri nú allt í lagi að prófa þetta. Það var í mars 2020. Eftir fjórar vikur var ég farinn að finna fyrir að eitthvað var að breytast
og eftir fjóra mánuði var ég orðinn töluvert betri. Ári seinna var ég hættur að finna fyrir verkjunum í hálsinum. Fyrir mér er þetta kraftaverk og lyginni líkast. Ég fékk nýtt líf. Engar verkjatöflur og mér gekk vel að sofna á kvöldin. Í rauninni er ég laus við verkina,“ segir Már, sem tekur þrjú hylki á dag og ætlar sannarlega að taka Active JOINTS frá Eylíf áfram.
Active JOINTS styrkir beinin, því það er kalkríkt og inniheldur D og C vítamín
Már segir að hann hafi spurst fyrir hjá Eylíf hvort það hentaði að taka Acive JOINTS á meðan beinin væru að gróa. „Mér var sagt að það væri mjög gott þar sem Active JOINTS styrkir beinin. Ég hélt því áfram að taka hylkin og er viss um að það hefur hjálpað þeim að gróa,“ segir hann. „Ég er bara virkilega ánægður með virknina í Active JOINTS og hef mikla trú á þessu fæðubótarefni enda eru innihaldsefnin kalkrík sem er nauðsynlegt fyrir viðhald beina. Einnig er C- og D3- vítamín í Active JOINTS frá Eylíf. Ég get ekki annað en mælt með vörunni,“ segir Már og bætir við að eiginkonan taki Smoother SKIN & HAIR og sé sömuleiðis mjög ánægð með þá vöru.
„Ég hef verið að benda vinum og kunningjum á Active JOINTS og veit að margir eru farnir að taka hylkin daglega enda gott fyrir liðina og beinin. Ég er ekki nægilega duglegur að fara í göngutúra þótt ég sé alltaf að hreyfa mig í alls konar stússi. Ég hef gaman af ýmiss konar viðhaldsvinnu og hef ágætis vinnuaðstöðu í bílskúrnum.“
Viðtalið birtist í Fréttablaðinu 3.desember 2022, er hægt að lesa hér í heild sinni

- C vítamín stuðlar að eðlilegri myndun kollagens fyrir eðlilega starfsemi beina, brjósk og æðastarfsemi
- C vítamín stuðlar að eðlilegri myndun kollagens fyrir eðlilega starfsemi beina, brjósk, góma, tanna, húðar og æðastarfsemi.
- C vítamín stuðla að því að verja frumur fyrir oxunarálagi.
- C vítamín stuðlar að eðlilegri myndun kollagens fyrir eðlilega myndun húðar.
- D vítamín stuðlar að viðhaldi eðlilegra beina og viðhaldi eðlilegrar vöðvastarfssemi
- D vítamín stuðlar að eðlilegri starfsemi ónæmiskerfisins
- D vítamín hefur hlutverki að gegna við frumuskiptingu
- D vítamín stuðlar að eðlilegu kalsíummagni í blóði
- Kalsíum er nauðsynlegt fyrir viðhald eðlilegra beina og tanna
- Kalsíum stuðlar að eðlilegri starfsemi taugakerfisins og að eðlilegri vöðvastarfsemi
- Kalsíum stuðlar að eðlilegri starfsemi meltingarenzýma.
- Magnesíum og C vítamín stuðla að því að draga úr þreytu og lúa
- Magnesíum stuðlar að eðlilegri starfsemi taugakerfisins og að eðlilegri vöðvastarfsemi
- Magnesíum stuðlar að viðhaldi eðlilegra beina og tanna