Hárið fór að vaxa og húðin silkimjúk
Þegar Kara Arngrímsdóttir danskennari fann fyrir auknu hárlosi var henni bent á að prófa Smoother SKIN & HAIR frá Eylíf. Eftir nokkra mánuði fann hún að hárið hafði þykknað og húðin var orðin silkimjúk. Hún segist varla hafa trúað þessum góða árangri.
Kara stofnaði dansskóla með Jóni Pétri árið 1989 en undanfarin ár hefur hún rekið hann ein. Nemendur eru á aldrinum þriggja ára og upp í áttrætt. Hún segir að það sé mikill áhugi fyrir dansi.
Þegar Kara var spurð hvers vegna hún hafi byrjað að taka Smoother SKIN & HAIR frá Eylíf segist hún hafa orðið vör við óvenju mikið hárlos, til dæmis stíflaðist sturtan, en þetta hafi þó ekki verið alvarlegs eðlis. „Það er ósköp eðlilegt að fá hárlos á vissum tíma árs en mér fannst þetta meira en venjulega. Ég hef alltaf verið með þykkt og gott hár en fannst það þynnast á tímabili. Mér var bent á að Smoother SKIN & HAIR frá Eylíf gæti hjálpað mér. Það væri mjög gott, bæði fyrir húð og hár. Ég ákvað því að prófa,“ segir hún.
Steinhissa á virkninni
Kara segist ekki hafa fundið mun strax en þegar um það bil þrír mánuðir voru liðnir frá því hún byrjaði að nota Smoother SKIN & HAIR frá Eylíf fór hún að taka eftir fullt af nýju hári á höfðinu. „Hárgreiðslukonan mín fór líka að spyrja mig hvað ég hefði gert við hárið því það væri einstaklega þykkt og fínt. Húðin var sömuleiðis orðin alveg silkimjúk sem kom mér á óvart. Það gerðist reyndar fljótt,“ segir hún. „Ég hef ekki tekið inn fæðubótarefni áður og var steinhissa hvað þetta virkaði vel. Ég get hiklaust mælt með Smoother SKIN & HAIR frá Eylíf,“ segir Kara. „Ég tek líka inn D-vítamín og Omega 3 á veturna. Auk þess reyni ég að borða hollan mat og sleppi alveg unnum vörum. Ég hef þá trú að gott mataræði skipti máli,“ bætir hún við. „Ég þarf að hafa góða orku sem danskennari og hef verið að hlaupa og gera styrktaræfingar reglulega til að bæta þrekið. Ég er í miklu betra formi núna eftir að ég fór að hreyfa mig reglulega. Það er orðið dáldið síðan ég hætti að keppa í dansi og sem danskennari þarf maður ekki að hreyfa sig mikið.“
Íslensk vara traustvekjandi
Kara segist taka 2-3 töflur daglega. „Það þarf að gefa þessu aðeins tíma til að sýnilegur árangur sjáist. Ég hef trú á að kollagenið í vörunni hafi mjög góð áhrif, bæði á hárið og húðina. Smoother SKIN & HAIR frá Eylíf er íslensk vara og það er traustvekjandi. Maður vill styrkja íslenska framleiðslu en auk þess er það traustvekjandi að vita hvaðan innihaldið kemur. Íslenskt hráefni er yfirleitt bæði hreint og gott. Ég verð að viðurkenna að ég er mjög ánægð með þessa vöru. Smoother SKIN & HAIR frá Eylíf hefur haft góð áhrif á mig og ég get alveg hvatt aðra til að prófa.
Smoother SKIN & HAIR frá Eylíf er sérhönnuð blanda fyrir húðina, hárið og neglurnar, sem inniheldur íslensk hráefni s. s. kollagen, astaxanthin, GeoSilica kísilinn og einnig önnur bætiefni sem virka fyrir húðina og hárið, eins og bíótín, selen og sink sem stuðla að viðhaldi eðlilegs hárs, nagla, húðar og beina og C vítamín stuðlar að eðlilegri myndun kollagens fyrir eðlilega myndun húðar.
Ég get því heilshugar mælt með Smoother SKIN & HAIR.
Kara Arngrímsdóttir, stofnandi og framkvæmdastjóri Dansskóla Köru