Skip to main content

Guðrún segist hafa fundið fyrir óþægindum í líkamanum árum saman. „Þrátt fyrir að ég hafi farið í vel heppnaða hnéaðgerð hef ég verið gjörsamlega ónýt í líkamanum. Gat ekkert gengið vegna mikils sársauka. Ég fór til læknis og var greind bæði með vefja- og slitgigt,“ segir hún. „Ég hef prófað að taka inn ýmis konar náttúruefni sem áttu að hjálpa og sömuleiðis hef ég farið í endurhæfingu. Það hjálpaði mér talsvert, en óþægindin héldu áfram að hrjá mig,“ bætir hún við.

Guðrún sá umfjöllun og ummæli um Active Joints frá Eylíf heilsuvörum. „Ég las innihaldslýsingar og þær hvöttu mig til að prófa. Einnig hafði vinkona mín mælt með Actice Joints, svo það var ekkert annað í stöðunni en að prófa. Vá, ég er þakklát, því eftir einungis tvær vikur var eins og ég væri leyst úr fjötrum, eða bönd hefðu verið skorin utan af mér. Allar mínar hreyfingar urðu auðveldari og sársaukalausar,“ segir hún.

Guðrún segist finna örlítið fyrir öðru hnénu, en að öðru leyti sé þetta nýtt og betra líf. Undanfarið hef ég ekki getað stundað æfingar vegna COVID-19. Það eru tveir mánuðir síðan ég byrjaði að taka inn Active Joints og ég get gengið um í dag, sem ég gat ekki áður með góðu móti. Fyrr í vetur hélt ég að ég væri útbrunnin, en svo er aldeilis ekki. Ég get því hiklaust mælt með Active Joints frá Eylíf. Það sem ég hef upplifað er stórkostlegt og ég þreytist því ekki á að dásama þessa vöru.“

Vörulína frá Eylíf

Vörulínan Eylíf býður upp á tvær vörur, Active Joints og Stronger Bones, sem bæta heilsu liða og styrkja beinin. Vörurnar eru unnar úr hreinum, íslenskum hráefnum, framleiðslan fer fram á Íslandi og öll hráefnin koma úr sjálf bærum auðlindum. Ólöf Rún Tryggvadóttir er stofnandi vörulínunnar Eylíf, en hugmyndin að henni kom til vegna þess að hana langaði að setja saman þau frábæru hráefni sem eru framleidd á sjálfbæran hátt úr náttúrulegum auðlindum á Íslandi og auka þannig aðgengi fólks að þessum hráefnum.

Eins og áður segir eru tvær tegundir frá Eylíf komnar á markað, Active Joints og Stronger Bones, en tvær aðrar tegundir eru væntanlegar í haust. Þær eru fyrir húð og hár annars vegar og hins vegar fyrir meltinguna.

„Active Joints inniheldur uppbyggjandi næringarefni og margra ára rannsóknir sýna fram á jákvæð áhrif þeirra á heilsu beina, liðamóta, húðar og tanna. Það hefur áhrif á auma og viðkvæma liði, eykur sveigjanleika þeirra, styrkir bein og eykur orku ásamt því að húð, neglur og hár njóta góðs af,“ segir Ólöf Rún. „Við vöndum til verka og sækjum í sjálfbærar auðlindir úr sjó og af landi. Við notum hreina, íslenska náttúruafurð, náttúruleg og hrein hráefni sem ekki eru erfðabreytt og stuðla að sveigjanlegri liðum, því með sveigjanlegri líkama erum við færari til að takast á við verkefnin í dagsins önn.“

Active joint frétt um Guðrúnu

Hrein hráefni og sjálfbær framleiðsla

„Eins og áður sagði notum við hrein, íslensk hráefni sem eru framleidd á sjálfbæran hátt í Eylíf vörurnar,“ segir Ólöf Rún. „Þau helstu eru kalkþörungar, GeoSilica, smáþörungar (astaxanthín) og íslenskar jurtir. Kalkþörungar og GeoSilica eru í báðum vörunum, en smáþörungar (astaxanthín) og íslenskt birki eru aukalega í Active JOINTS ásamt C- og D3-vítamíni.

Kalkþörungarnir vaxa villtir neðansjávar við Vestfirði og finnast helst í Arnarfirði, þar sem þeir eru tíndir neðansjávar. „Áhrif og virkni þeirra er einstök og þeir hafa verið rannsakaðir mjög ítarlega undanfarin ár.

Margar rannsóknir hafa staðfest einstaka eiginleika þeirra og góð áhrif á líkamann: þeir styrkja beinvef, byggja upp beinin, hafa góð áhrif á meltinguna og húðina og hafa líka reynst vel gegn sliti og óþægindum í liðum,“ segir Ólöf Rún.

GeoSilica er náttúrulegur, hágæðakísill, sem er tekinn úr náttúrulegu jarðhitaefni við Hellisheiðarvirkjun. „Kísillinn hefur öflug áhrif á bandvef og beinvef, hann styrkir húðina og eykur teygjanleika hennar. Kísill eykur líka beinþéttni, örvar hárvöxt og styrkir neglurnar, brjóskmyndun og æðakerfið. Virkni hans hefur verið staðfest með rannsóknum,“ upplýsir Ólöf Rún.

Rannsóknir hafa líka staðfest virkni astaxanthín, eða smáþörunga, en það er öflugt andoxunarefni sem er 6.000 sinnum öflugra en C-vítamín, segir Ólöf Rún. „Astaxanthín hefur einstaka eiginleika og góð áhrif á líkamann og má nefna öfluga virkni fyrir húðina, vöðvana, blóðrásina, hjartað og heilann. Það styrkir ónæmiskerfið og sjónina og virkar sem innri sólarvörn fyrir húðina, ásamt því að auka teygjanleika og mýkt hennar, en margar rannsóknir hafa staðfest þessi áhrif.“

Eylif heilsuvörur

Astaxanthín er framleitt í lokuðu kerfi með hreinu, íslensku vatni, en framleiðslan er bæði vistvæn og sjálfbær og fer fram í Hafnarfirði og í Reykjanesbæ. „Allar jurtirnar sem eru notaðar í Eylíf vörulínuna eru handtíndar og þurrkaðar af íslensku fyrirtæki í Hafnarfirði. Birkilauf sem notuð eru í Active Joints hafa verið notuð frá örófi alda við ýmsum kvillum og hafa vatnslosandi eiginleika,“ segir Ólöf Rún.

[blog_posts style=”normal” columns=”3″ columns__md=”1″ cat=”71″ image_height=”56.25%”]
Active JOINTS

Hægt er að skoða allt um Active JOINTS hér

Leave a Reply