Skip to main content

Sirrý stjórnendaþjálfari er ánægð með Smoother SKIN & HAIR vöruna frá Eylíf. Hún leyfði blaðamanni frá Fréttablaðinu að ræða við sig um afurðir sjávar fyrir húð og hár. Sjá viðtalið í fullri lengd hér

Heilbrigðið byggir á fæðunni

Sirrý segist hafa verið spennt að prófa Smoother Skin & Hair frá Eylíf þegar hún heyrði af vörunni. „Ég hef alltaf borðað mjög hollan og næringarríkan mat enda er ég sannfærð um að það sem maður setur ofan í sig hefur gríðarleg áhrif á okkar ytra byrði. Égrækta mitt eigið grænmeti, lifi heilbrigðu líferni og hreyfi mig reglulega og hef alltaf verið með heilbrigt hár. Heilbrigði hársins byggir ekki á því sem gerist á hár- greiðslustofunni eða þeim efnum sem sett eru í það eftirá. Heilbrigt hár byggir á fæðunni og því sem við setjum ofan í okkur.“

Hætt að þurfa krem

Eftir að Sirrý byrjaði að taka inn Smoother Skin & Hair frá Eylíf hefur hún aldrei verið betri í húð- inni og hárið er enn heilbrigðara. „Ég er alveg hætt að finna fyrir hárlosi og fólk tók strax eftir því að hárið virkaði enn heilbrigðara en áður. Húðin varð að sama skapi mun mýkri og jafnari. Eðlilega fæ ég lífslínur í kringum augun eftir því sem árunum fjölgar, en mér finnst ótrúlegt að núna þegar ég er komin á miðjan aldur, þá er ég farin að mála mig miklu minnaog þarf mun minna af förðunar- vörum en áður. Ég er líka eiginlega hætt að nota öll krem, fyrir utan sólarvörn. Ég þarf þau einfaldlega ekki.

Áður fann ég að húðin breyttist mikið eftir veðri, vindum og árs- tíðum. Stundum var húðin feit á einum stað og þurr á öðrum. Með því að taka inn Smoother SKIN & HAIR er húðin í andlitinu og líkamanum í fullkomnu jafnvægi allt árið um kring. Því þó maður borði hollt og stundi heilbrigt líferni þá búum við á eyju þar sem er myrkur stóran hluta af árinu. Hér eru tíðar veðurbreytingar, ekki bara á milli árstíða heldur á milli daga, svo er mikil sveifla í hita- og rakastigi sem umbreytist enn örar í skammdeginu. Til að sporna gegn þessum utanaðkom- andi áhrifum er nauðsynlegt fyrir okkur að næra húðina innanfrá, taka inn olíur og bætiefni eins og Smoother Skin & Hair frá Eylíf.“

Dýpstu verðmætin úr hafinu Sirrý trúir því að líkamleg og andleg framtíð þjóðarinnar sé háð því hvernig við komum fram við auðlindir hafsins. „Í hafinu er að finna okkar dýpstu verðmæti og meðal annars ýmislegt fyrir útlit og heilsu. Ég er mjög stolt af því sem Eylíf er að gera sem og aðrir frum- kvöðlar í Sjávarklasanum, það er að nota auðlindir hafsins. Þetta er nákvæmlega það sem við Íslendingar eigum að gera. Við eigum leggja metnað okkar í að rækta eigið grænmeti og við eigumað einblína á og nýta auðlindir hafsins og vinna úr þeim. Fyrir utan það að líða betur líkamlega, þá líður mér líka mun betur í sálinni að nota íslensk bætiefni sem ég veit hvaðan koma.“