Beinþéttni, konur og vítamín

Beinþynning gerir ekki boð á undan sér og fyrir konur getur hún reynst þrautinni þyngri eftir að tíðahvörfum líkur.  Því setja margar konur beinþéttnimælingu á sinn heilsu-tjékklista um og eftir fimmtugt.

Beinþynning um 55 ára

Einn viðmælandi okkar, kona á sextugsaldri tjáði okkur að hún hefði ekki gætt að kalk og D-vítamín búskapnum meðan á tíðahvörfum stóð. Læknirinn hennar sagði að þetta leiddi líkum að því að væri ástæða þess að kalkhormónið hefði hækkað með því að sækja sér kalk í beinin. Hún greindist 55 ára með beinþynningu. Hún gætir sérlega vel að þessum málum í dag og velur að taka inn Stronger BONES.

Beinin bera okkur uppi

Rannsóknir á beinum hafa leitt í ljós að þau eru lifandi vefur og byggja styrk sinn á kalki sem sem þau endurnýja í sífellu og deila með allri líkamsstarfseminni. Þessi starfssemi er öflug því beinvefurinn endurnýjar sig til fulls yfir sjö ára tímabil en hún kallar á að við innbyrðum næringarefni sem styðja við endurnýjunina. Góðar upplýsingar um beinþynningu og forvarnir er að finna á vef Heilsuveru.is

Fjárfesting í beinum snýst því um góða næringu og hreyfingu ásamt náttúrulegum, viðurkenndum, lífrænum fæðubótarefnum, er okkur því nauðsynleg á öllu aldursskeiði. Fjárfestingin snýst um góða næringu og hreyfingu ásamt náttúrulegum, viðurkenndum, lífrænum fæðubótarefnum.

Kalkþörungar, kísill og beinþéttni

Konum er talin vera þrefalt meiri hætta á að fá beinþynningu er körlum. Þeim er ætíð ráðlagt að taka inn kalk og D-vítamín, á öllum æviskeiðum til að fyrirbyggja beinþynningu og viðhalda beinþéttni. Þar koma kalkþörungar sterkt inn en þeir innihalda 74 stein- og snefilefni frá náttúrunnar hendi. Rannsóknir sýna að kalkþörungar geta haft verulega möguleika á að meðhöndla beinasjúkdóma eins og beinþynningu.[1] Kalkþörungar ættu því að vera sjálfsagður hluti af vítamíninntöku kvenna, alltaf. Rannsóknir benda einnig til þess að neysla kísils sé gagnleg fyrir heilsu beina, að hann gegni mikilvægu hlutverki í endurnýjun þeirra og sé góð forvörn gegn beinasjúkdómum, eins og beinþynningu.[2]

Öflug og hrein íslensk náttúruleg efni

Við höfum lagt okkur fram við að setja saman öflug efni í vítamínin okkar og Stronger BONES er þar engin undantekning. Stronger BONES frá Eylíf inniheldur m.a. kalkþörunga frá Arnarfirði og kísil frá GeoSilica sem er frá affalli heita vatnsins á Hellisheiðarvirkjun. Náttúruleg og hrein íslensk hráefni ásamt D3-vítamíni, mangan og sinki, rík af kalki, magnesíum og stein- og snefilefnum.

Að taka inn vítamín sem styrkir beinin er nauðsynlegt öllum sem vilja fyrirbyggja og viðhalda beinþéttni sinni. Við tökum hlutverk okkar alvarlega og höfum þessvegna lagt okkur fram við að velja saman bestu mögulegu hráefnin í okkar framleiðslu. Stronger BONES er metnaðarfull blanda sem leggur sitt af mörkum við uppbyggingu og viðhaldi sterkra beina. Kalkþörungar sem eru í vörum Eylífar eru mjög kalkríkir og innihalda einnig 74 stein- og snefilefni frá náttúrannar hendi. Þeir vaxa villtir á sjávarbotni Arnarfjarðar og eru nýttir til mann- og dýraeldis. Við bætum einnig við kísil frá GeoSilica því gott er að bæta upp það magn kísils sem ekki næst úr almennri fæðu. Svo að lokum til þess að efnin nýtist sem best þá bætum við einnig C og D3 vítamín við blönduna til að kalkið í kalkþörungunum nýtist betur. Eylíf vörurnar sem innihalda kalkþörunga eru: Active JOINTS, Stronger BONES og Happier GUTS

Leyfilegar heilsufullyrðingar:

D vítamín stuðlar að viðhaldi eðlilegra beina og viðhaldi eðlilegrar vöðvastarfssemi. Kalsíum er nauðsynlegt fyrir viðhald eðlilegra beina og tanna. Magnesíum stuðlar að viðhaldi eðlilegra beina og tanna.  C vítamín stuðlar að eðlilegri myndun kollagens fyrir eðlilega starfsemi beina, brjósk, góma, tanna, húðar og æðastarfsemi. 


Heimildir:


[1] https://www.eylif.is/wp-content/uploads/2019/11/6.-OGorman-et-al.-2012-Bone.pdf

[1] https://www.eylif.is/wp-content/uploads/2019/11/A-REVIEW-OF-THE-EFFECTS-OF-DIETARY-SILICON-INTAKE_keypt-grein.pdf